habboson.bloggar.is
ÚglendingurSigurbjörn Hafþórsson
Og þar með er þolinmæðin á þrotum og ég kveð íslenska bloggheiminn og fer i þann úglenska.http://sigurbjornhafthorsson.blogspot.com/
BreytingarSigurbjörn Hafþórsson
Eins og þið sjáið þá hefur útlitið verið breytt á síðunni, þetta er aðeins upphafið á risa breytingarskeiði sem er að hefja sinn gang. Ég hef t.d ákveðið að blogga frekar stutt blogg og uppfæra þá oftar, jafnvel oftar en 1 sinni á dag og gá hvort síðan verði virkari þannig. Og svo er bloggar.is mjög oft bilað og þolinmæðin alveg á þrotum hérna megin svo það er síðasti séns hjá bloggar.is annars verður flutningur að veruleika.Aldrei að vita nema það komi ný færsla áður en dagurinn er á enda.
Framandi draumur..Sigurbjörn Hafþórsson
Eitt lítið áður en augun i mer lokast alveg og ég flýg inn í draumaheiminn minn sem er heldur betur litríkur, reyndar dreymir mig mun meira í skólanum á daginn heldur en þegar´eg er sofandi, dagdraumarnir alveg að fara með mann og áður en maður veit af er kennarinn annað hvort að spurja mann að einhverju og ég svara " ha já, ahh þetta er akkurat þessi sem ég gat ekki" og þá fæ ég yfirleitt á móti " taktu þá þessa fyrir neðan" og þá verð ég vandræðilegur og þarf að játa mig sigraðann og játa að hafa reynt að ljúga að háttvirta kennaranum, eða þá að bjalann hringir og tíminn er búinn sem er það besta við dagdraumana, tíminn flýgur áfram.Þetta er allt með hefðbundnum hætti hérna í Keflavík fyrir utan smávegis flensu undanfarna daga, skóli, æfing, svefn, síðan skrapp ég á sigló síðustu helgi sem var megavikaofurstuð, fór á þorrablót með guðny sem var æði, nei nuna er ég farinn að hljóma eins og allar blogg gelgjur landsins, en neinei það var mjög fint. Núna er bara biða i 8 daga i viðbot og þa kemur Guðny oooog familian lika, verður nu bullandi gleði herna megin þá.
Svo er farið að styttast i spánar ferðina ! 11. Apríl og þarf maður að fara ihuga vandlega, hvar og hvernig tatoo maður ætlar að fá sér, þetta er nátturulega hlerjarinnar pæling og endilega koma með hugmyndir, tökum bara sénsinn á að mamma sé ekki að lesa þetta.
en nóg í bili, ég er laggstur á koddann og bíð góða nótt.
The saints are coming !Sigurbjörn Hafþórsson
Jæja ætli maður hendi ekki inn einni færslu hérna því ég á alveg örugglega ekki eftir að nenna því í kvöld.Testið í gær var rosalegt. Náði samt fínum tíma, miklu betri en síðast, var samt alveg jafn erfitt og hrikalega vond tilfining að vera með þrjátiu litra af slimi fast í hálsinum hóstandi eins og mongoliti í hálftima í bland við tilfinginguna að þurfa að æla, en það slapp í þetta skiptið.
Er í eyðu eins og er, frí í bókfærslu. Á því bara eftir að fara í ensku. Í dag er svo leikur með m.fl Keflavík. Förum í Kópavoginn kl hálf fimm og spilum við HK, er reyndar að kveljast í hnénu en reyni að spila, er samt ekkert alltof bjartsýnn. Síðan er enþá spurning hvort maður komist norður á fimmtudaginn, en á morgun er leikur við Grindavík. Síðan er froðuball í skólanum annað kvöld, er kallinn bunað kaupa sér miða. Verður eflaust stuð.
The Saints Are Coming með u2 og Green Day er að gera góða hluti í græjunum mínum !
Þangað til næst..
Þá nú og þáSigurbjörn Hafþórsson
Jæja hendi hérna smá inn.Nóg verið að gera undanfarið hérna fyrir sunnan, skrapp eftir æfingu á föstudaginn í bæinn og gisti hjá Salla og Sæsa og co. Fórum í bíó á Babel sem var skrýtin en þónokkuð góð, 7 af 10. Síðan var leikur á laugardeginum með 2.fl vs Aftureldingu í Mosó á gervigrasi út! Takið eftir ekki í höll heldur undir berum himni. Sem var reyndar ekki berari en það að það var haglél nærstum allan leikinn og völlurinn í sannleikasagt á kafi. Fáranlegasti leikur sem ég hef spilað, við sóttum og sóttum allan leikinn, sköpuðum okkur u.þ.b 200 færi á fystu 70 minutunum. Enþá var einn leikmaður Aftureldingu rekinn útaf og eftir það vorum við bara inní teignum þeirra fyrir utan eina skyndisókn sem þeir skoruðu úr, úrslitin 1-0 tap, alveg ótrulegt. Ég á nú ekki sökina á nema einu góðu færi, var hafsent fyrstu 70 minuturnar i leiknum. Hélt hreinu.
Eftir leikinn var haldið í kringluna að eta og þaðan beint í Kef. Þar hittumst nokkrir heima hjá einum stráknum i liðinu þar sem var eldaður kjúklingur og nautakjöt og tekin smá FIFA á þetta, og þaðan haldið í póker heima hjá öðrum strák í liðinu. Eftir pókerinn var farið í pool og síðan var maður kominn heim um 1 leitið.
Sunnudagurinn var svo bara tekinn rólega, horfði á Man.utd rúlla yfir Tottenham og slappaði af.
Dagurinn í dag hefur farið mestur i skólann bara, er nuna uppi rumi að hlusta á 12.ágúst 99 með sálinni og undirbua mig fyrir mesta viðbjóð á minni æfi. En klukkan hálf 7 er sama þrekpróf og ég fór í í Desember, eins gott að formið hafi batnað aðeins en ég var nær dauða en lífi eftir síðasta test. Miðað við orðið í skólanum þá voru menn byrjaðir að fá kvíðaköst í morgun, þetta er rosalegt.
Síðan hugsa ég að ég eldi afganginn af saltfisknum sem ég eldaði um daginn, og slappi af í kvöld enda liklega ekki til orka í meira.
Svo er ekki enþá komið á hreint hvort ég kem heim á fimmtudaginn eða ekki um þessa helgi, þá verður það liklega bara páskarnir, kemur i ljós á morgun eða hinn.
Á morgun er leikur hjá m.fl gegn HK í Fífunni og veit ég ekki betur en ég eigi að spila þann leik en það kemur betur i ljos í kvöld, síðan er leikur á miðvikudaginn vs Grindavík verður spennandi að sjá hvernig það fer allt saman.
En jæja, reyni að láta ekki líða jafn langt þangað til næst og síðast.
Vel gert GeirssonSigurbjörn Hafþórsson
Jæja þá eru Islendingar dottnir út úr hm. Eitthvað sem ég var búnað undirbúa mig undir andlega mjög lengi, eða allt frá því þeir spiluðu við Úkraínu. Það kom að því dag en þeir duttu þó þannig út að það er ekki hægt að drulla yfir þá eins og venjulega, það er aðeins hægt að drulla yfir Loga Geirsson þar sem hann gjörsamlega rétti Dönum farseðillinn í 4 liða úrslit í lok fyrri hálfleik framlengdingarinnar með fávitaskap. Eins fannst mér Guðjón Valur drulluslappur á þessu móti. Aðrir stóðu sig þokkalega. Snorri á t.d skilið fálkaorðuna frá forsetanum fyrir frammistöðu sína í dag.Er núna að horfa á Liverpool, annað en Ísland þá eru þeir að rúlla yfir West ham 2-0 í frekar rólegum leik og litið sem getur breytt því að þeir vinni auðveldan sigur, spái þessu svona 3-0, gæti dottið í 4 með heppni, gæti endað 2-0 með óheppni. Alltaf gaman að sjá Álfinn Eggert Magnússon með skeifubros uppí stúku.
Annars er allt fínt að frétta hérna í Keflavík. Er búnað spila tvo leiki síðan ég ritaði eitthvað marktækt hérna, fyrst á móti m.fl ÍR en það var u-20 ára liðið sem spilaði þann leik. Hann endaði 1-1 og þar átti ég fínan leik, áttum bara að vinna leikinn.
Síðan spiluðu 2.fl á móti Breiðablik á föstudaginn sem endaði 3-3 eftir að við lentum 3-0 undir, sem voru helviti góð úrslit þvi í desember tapaði keflavik 10-2 á móti sama liði.
Á laugardaginn kemur spilar 2.fl við Aftureldingu og á miðvikudaginn eftir rúma viku spilar m.fl síðan við Grindavík og vonandi að maður fái eitthvað að spreyta sig þá. Síðan laugardaginn eftir er leikur við Val en þá hafði ég ætlað að reyna koma norður en verður liklega eitthvað lítið úr því, þannig maður kemur bara seinna.
Síðasta vika var mögnuð, þá var Guðný hérna í Keflavík, vikan var eiginlega of góð, og eins og hálfur dagur að líða sem er frekar fúlt.
Jæja nuna er west ham bunir að minka munin, klárlega rangstaða!
En jæja ætla einbeita mer að leiknum heyrumst bara
NammSigurbjörn Hafþórsson
Hvað er betra en að vera feitur eftir erfiða æfingu, fara í lúgu á kfc, koma við í sjoppu kaupa coke og hraun og fara uppí rum að horfa á e-ð í tölvunni og éta. Maður spyr sig.Hef ekki orku í meira. Góða Nótt
Vantar hjálpSigurbjörn Hafþórsson
Leikur í kvöld, 2.fl vs BreiðablikÉg er hafsent..bið ykkur lesendur góðir að fara með faðir vorið og óska mér alls hið besta, ekki veitir af á svona stundu.
-guð hjálpi mér
Far óskastSigurbjörn Hafþórsson
Enn einn dagurinn á enda. Þetta var hefðbundinn dagur hérna í Keflavík. Akademia, skóli, æfing, þreyta.Á laugardaginn er leikur hjá okkur á móti ÍR, liðið er frekar ungt, enginn sem hefur verið fastamaður hjá Keflavík nema markmennirnir, aðrir eru undir 21 árs. Mun vera fyrsti leikurinn minn.
Annars hef ég ekki mikið að segja í dag. En mer vantar nauðsynlega eitt pláss suður á föstudaginn. Það hlítur einhver af þessum 39 gestum sem hafa heimsótt síðuna mína í dag að vita um einhvern sem fer suður á föstudag. Ef það reddast ekki far þá hóta ég að hætta með síðuna. Commentið á far með fyrirfram þökk.
Aðstoðarþjálfarinn hefur gaman af því að lauma að okkur bröndurum í mesta púlinu til að létta okkur lundina, eins og á lyftingaræfingum, hér eru tveir brandarar frá honum frá því á síðustu æfingu og með þeim ætla ég að kveðja þetta stutta blogg í dag.
P.S brandari numer 2 er of mikil snilld!
1. Hvað var það síðasta sem Saddam sagði við bróður sinn áður en hann var drepinn?
- Verðum í bandi.
2. Maður og kona, skilin, voru í réttarsal að berjast um forræði yfir barni sínu. Maðurinn gekk æstur fram og sagðist eiga barnið meira en konan, Hann ætti barnið! Dómarinn fannst þetta nu dáldið furðulegt að maðurinn gæti þóst eiga barnið meira en konan því það var jú hún sem fæddi barnið. Svo dómarinn bað manninn að útskýra þessa skoðun sína.
Og þá sagði maðurinn.
- Jú hr.dómari, ef þú stendur við kók sjálfsala, og setur 100 kall í sjálfsalann og kókflaskan dettur út, hvort á þá kókið, þú eða sjálfsalinn?
hahaha
GoooalSigurbjörn Hafþórsson
Meðan ég man, þá er best að blogga. Og ég held ég hafi meira segja eitthvað að segja í þetta skiptið.Hvað er málið með snjóinn hérna? Alveg týpiskt að þegar ég flyt suður að þá fyllist allt af snjó og virðist ekkert ætla fara, alveg óþolandi.
Ég gerði mer litið fyrir og gerði mer svona ömmupizzu í gær, semsagt tilbuna pizzu keypt út í búð og hitaði hana í ofni, virðist ekki vera flókið verk eða hvað? En einhvernvegin tókst mér samt að koma reykskynjaranum í gang, var nu samt aldrei nein hætta, gott að sjá að hann virkar.
Ég setti lika þetta rosamark á æfingu í gær, en þá var stillt upp byrjunarliðinu síðasta sumar á móti kjúllunum, til að gera langa sögu stutta þá töpuðum við 5 eða 6-2 og ég setti lika þessa rosabombu, hægri bakvörðurinn okkar hleypur upp allan völlinn og þrumar í stöngina, léileg hreinsun út, ég drep boltann á 25-30 m færi og læt skotið ríða af og búmmmmm ofarlega í stöngina og inn örugglega á 430 km hraða. Var sáttur, fagnaði eins og brjálaðingur enda buinn að minnka muninn í 6-2.
Dagurinn í dag byrjaði nu ekki vel, rölti út kl fimm min í 8 og ætlaði að fara keyra í akedemiuna á æfingu, neinei sprungið hja mer, svo ég fór nu ekki lengra en niðrá verkstæði, reyndi fyrst að pumpa í dekkið en það lak bara, missti af æfingu, svekk? já.
Ég er kominn uppi rum, klukkan rétt rúmlega 8. Nýbúinn að éta spaghetti. Það sem útskýrir það er þreyta, var á úrtaksæfingum u-19 um helgina, 1 og halfur timi á lau, og var svo látinn spila báða leikina á sun, frá 1-4. Er semsagt buinn með þessari einu æfingu nuna sem ég var að koma af bunað fara á 13 æfingar á 9 dögum. Því er einfaldlega mjög ljúft að skríða upp í rum svona snemma og horfa á e-ð í tölvunni áður en maður sofnar.
Svo er netið og enski boltinn komið sem er ekkert nema snilld.
Svo er Guðný að koma eftir nokkra daga, ég á rosalega erfitt með að bíða!
Farinn að horfa á prision break..